þjónustan okkar // það sem við gerum best

HAFA SAMBAND

content áskrift

við tryggjum stöðugt flæði af vönduðu efni í hverjum mánuði, unnið út frá markmiðum vörumerkisins og því efni sem þörf er á hverju sinni. efnið er hægt að nýta á samfélagsmiðlum, í auglýsingum, tölvupóstum og á vefsíðu.

Katla og Silja hjá Studio Níu

HENTAR ÞÉR EF

SÉRSTAKLEGA FYRIR

INNIFALIÐ

þú þarft reglulega nýtt efni fyrir markaðsstarfið en vilt ekki þurfa að skipuleggja sérstakan tökudag í hvert skipti sem vantar nýjar myndir eða myndbönd.

stafrænar auglýsingar, samfélagsmiðla, tölvupósta, vefsíðu og annað markaðsefni.

  • stefnumótun út frá mánaðarlegum markmiðum
  • hugmyndavinna og greining á nýjustu trendum
  • umsamið magn fullunna mynda í hverjum mánuði
  • umsamið magn fullunna reels/tiktok-myndbanda í hverjum mánuði
  • mánaðarlegur hugmyndafundur
  • mánaðarleg greining á samkeppnisaðilum
  • fullur nýtingarréttur á öllu efni
  • möguleiki á að nýta teymið okkar í efninu

stök content verkefni

við framleiðum umsaminn fjölda fullunninna mynda og myndbanda út frá þörfum og áherslum vörumerkisins. við sjáum um hugmyndavinnu, tökur og fullvinnslu og afhendum efnið tilbúið til birtingar. efnið getur meðal annars nýst á samfélagsmiðlum, í auglýsingum, tölvupóstum og á vefsíðu.

Katla og Silja hjá Studio Níu

HENTAR ÞÉR EF

SÉRSTAKLEGA FYRIR

INNIFALIÐ

þú þarft nýjar myndir eða myndbönd fyrir ákveðna vöru, herferð eða annað markaðsstarf og vilt fá tilbúið efni án þess að skuldbinda þig í mánaðarlegt samstarf.

fyrirtæki sem vilja panta efni eftir þörfum og sjá sjálf um birtingu þess.

  • undirbúningsfundur til að fara yfir áherslur og umfang
  • hugmyndavinna og skipulag fyrir tökur
  • tökur á myndum og myndböndum
  • umsaminn fjöldi fullunninna mynda og myndbanda
  • efni aðlagað að þeim miðlum sem það á að nýtast á
  • umsaminn nýtingarréttur

content á viðburðum

við mætum á staðinn og sjáum um að ná efni á meðan hlutirnir gerast. við sjáum um hugmyndavinnu, tökur og úrvinnslu fyrir viðburði, vörukynningar, herferðir og tökudaga. efnið er vandað, fjölbreytt og tilbúið til birtingar á instagram, tiktok og öðrum stafrænum miðlum.

Katla og Silja hjá Studio Níu

HENTAR ÞÉR EF

SÉRSTAKLEGA FYRIR

INNIFALIÐ

þú ert með viðburð, herferð eða vörukynningu og vilt teymi á staðnum sem sér um að fanga réttu augnablikin.

þú ert að skipuleggja myndatöku og vilt tryggja að samhliða verði framleitt efni fyrir samfélagsmiðla.

þú vilt geta birt efni hratt á meðan viðburður eða herferð stendur yfir eða strax að henni lokinni.

vörukynningar, viðburði, herferðir, tökudaga, opnanir, áhrifavaldaviðburði og aðra markaðstengda viðburði.

  • framleiðsla samfélagsmiðlaefnis á staðnum
  • hugmyndavinna og skipulag fyrir tökudag
  • fyrirfram ákveðinn fjöldi af fullunnum myndböndum (short-form)
  • aðgangur að óunnu myndefni
  • undirbúningsfundur fyrir tökudag
  • hröð afhending þegar þörf er á efni samdægurs eða stuttu eftir viðburð
  • umsjón með stories á meðan viðburði stendur ef þarf

umsjón samfélagsmiðla

við sjáum um skipulagningu og birtingu efnis á samfélagsmiðlunum þínum, ásamt textaskrifum og stefnumótun. við mótum stefnu og búum til efni sem er sniðið að þínum markhópi.

Katla og Silja hjá Studio Níu

HENTAR ÞÉR EF

SÉRSTAKLEGA FYRIR

INNIFALIÐ

þú ert með efni til staðar en vilt fá aðstoð við að skipuleggja það, halda utan um birtingar og sjá til þess að samfélagsmiðlarnir séu virkir.

fyrirtæki sem vilja halda úti reglulegri og samræmdri miðlun á samfélagsmiðlum án þess að sjá sjálf um daglega umsýslu.

  • umsjón með instagram / tiktok
  • mánaðarlegt efnisplan
  • stefnumótun
  • skrif á texta (captions)
  • leitarorð, myllumerki
  • tímasetning og birting efnis
  • samskipti við fylgjendur
  • mánaðarleg yfirferð á því sem er að virka
  • möguleiki á mánaðarlegri framleiðslu efnis