Studio Níu

HUGMYNDAVINNA, STEFNUMÓTUN OG FRAMLEIÐSLA EFNIS FYRIR SAMFÉLAGSMIÐLA OG STAFRÆNA MARKAÐSSETNINGU.

HAFA SAMBAND
Studio Níu

þjónustan okkar // það sem við gerum best

ÞJÓNUSTA
[01]

CONTENT ÁSKRIFT

Við tryggjum stöðugt flæði af vönduðu efni í hverjum mánuði, unnið út frá markmiðum vörumerkisins og því efni sem þörf er á hverju sinni. Efnið er hægt að nýta á samfélagsmiðlum, í auglýsingum, tölvupóstum og á vefsíðu.

[02]

STÖK CONTENT VERKEFNI

umsaminn fjöldi mynda og myndbanda út frá þörfum og áherslum vörumerkisins. við sjáum um hugmyndavinnu, tökur og vinnslu og afhendum efnið tilbúið til birtingar.

[03]

CONTENT Á VIÐBURÐUM

Við mætum á staðinn og sjáum um að ná efni á meðan hlutirnir gerast. Við sjáum um hugmyndavinnu, tökur og úrvinnslu fyrir viðburði, vörukynningar, herferðir og tökudaga.

[04]

UMSJÓN SAMFÉLAGSMIÐLA

Við sjáum um skipulagningu og birtingu efnis á samfélagsmiðlunum þínum, ásamt textaskrifum og stefnumótun. Við mótum stefnu og búum til efni sem er sniðið að þínum markhópi.

Silja og Katla

um okkur

VIÐ ERUM SILJA & KATLA, STOFNENDUR STUDIO NÍU.

Katla er með B.S. gráðu í viðskiptafræði (af markaðsfræðilínu) en Silja er menntaður hársnyrtisveinn og Pilates kennari, með diplómu í heildrænni næringarfræði. Bakgrunnur okkar er ólíkur en við eigum það þó sameiginlegt að vera skapandi að eðlisfari og höfum báðar mikinn áhuga á fagurfræði, tísku og samfélagsmiðlum.

Við höfum báðar starfað sjálfstætt við umsjón samfélagsmiðla og gerð efnis fyrir fyrirtæki og höfum nú sameinað reynslu okkar og skapandi styrkleika í Studio Níu, þar sem við vinnum saman að hugmyndum, skipulagningu og framleiðslu efnis fyrir samfélagsmiðla.

dæmi um myndir & myndbönd sem við höfum tekið

PORTFOLIO
PortfolioPortfolioPortfolioPortfolio

HUGMYNDAVINNA, STEFNUMÓTUN OG FRAMLEIÐSLA EFNIS FYRIR SAMFÉLAGSMIÐLA OG STAFRÆNA MARKAÐSSETNINGU.

Hjá Studio níu sjáum við um hugmyndavinnu, skipulag, tökur og klippingu efnis sem er sérstaklega hugsað fyrir samfélagsmiðla og stafræna markaðssetningu. Efnið er alltaf unnið með vörumerki, markhóp og markmið í huga en við fylgjumst einnig vel með trendum og öðru sem er að gerast á samfélagsmiðlum og þróum hugmyndirnar okkar út frá því.

Við tökum einnig að okkur framleiðslu efnis á vörukynningum, myndatökum, opnunum, áhrifavalda-viðburðum og öðrum markaðstengdum viðburðum. Þá mætum við á staðinn og sjáum um tökur og vinnum efni fyrir viðburðinn.